
Núvitundar námskeið
Á þessu 8 vikna námskeiði munum við skoða ólíka þætti hugans. Við þjálfum okkur í
núvitund með því að upplifa meiri skilning og gefa því meira rými hvernig hugurinn
virkar. Að þjálfa sig í að fylgjast með huganum án þess að gagnrýna og hafa samkennd
með eigin huga. þegar óhamingja eða streita grúfa yfir tekurðu þær ekki persónulega
heldur lærir að líta á þær eins og svört ský á himni og þjálfar þig í að skoða þær með
vinsamlegri forvitni meðan þær líða hjá. þú þjálfar þig í að grípa neikvæðu hugsanirnar
áður en þær ná að draga þig niður. Það er upphaf þess að þú náir aftur stjórn á eigin
lífi. Núvitundarþjálfun leyfir okkur að kynnast og tengjast okkur sjálfum og styður
okkur í að standa með okkur. Með núvitund og langtímabreytingum stuðlar þú að
skapferli og meiri lífsgleði og vellíðan. þetta felur í sér vakandi athygli á hverju andartaki
sem er grundvöllur á að hugarró skapist. Maður kemst í beina snertingu við hugann
og öðlast djúptæka þekkingu á honum. Af þessu leiðir innri skilningur og skörp innsýn
í þá blekkingu sem við höfum skapað um okkur sjálf og eðli lífsins. Þegar hugurinn
hefur skapað sér þetta tvennt hugarró og skarpa innsýn þá finnum við fyrir frelsun
frá þjáningu og samhliða birtist kærleikur og viska.
Vísindalegar rannsóknir
Hafa sýnt að núvitund kemur ekki bara í veg fyrir þunglyndi heldur hefur hún jákvæð áhrif á þá heilastarfsemi sem veldur kvíða, streitu, þunglyndi og pirringi. Þegar koma upp vandamál er mun auðveldara en ella að fá þau til að hverfa á ný.
Kostir núvitundarhugleiðslu
-
Fjölmargar sálfræðirannsóknir hafa sýnt að þeir sem stunda hugleiðslu reglulega eru lífsglaðari og ánægðari en í meðallagi. Þetta eru ekki bara mikilvægar niðurstöður sem slíkar heldur skipta þær líka miklu máli í læknisfræðinni vegna þess að slíkar jákvæðar tilfinningar tengjast lengra og heilbirgðara lífi.
-
Við reglubundna hugleiðslu dregur ævinlega úr kvíða, þunglyndi og pirringi. Minni batnar, viðbrögð verða sneggri og andlegt og líkamlegt úthald eykst.
-
Þeir sem stunda hugleiðslu reglulega eiga í betri og ánægjulegri samböndum.
-
Rannsóknir um allan heim hafa leitt í ljós að hugleiðsla lækkar helstu vísibreytur um króníska streitu, þar á meðal háan blóðþrýsting.
-
Hugleiðsla gagnast líka við að draga úr áhrifum alvarlegra veikinda, eins og krónískra verkja og krabbameins og getur meira að segja skilað árangri við að draga úr fíkn í lyf og áfengi.
-
Rannsóknir haf sýnt að hugleiðsla styrkir ónæmiskerfið og hjálpar fólki að berjast við kvef, flensu og aðrar pestir.
Kennslugögn
Námskeiðinu fylgir kennsluhefti sem er samið af Rob Nair og kennurum Mindfulnessassociation. Leiðarvísirinn hefur líka að leiðarljósi vinnu Thich Nhat Hanh, Jon Kabat Zin, Paul Gilbert, Christopher Germer, Kristin Neff, Tara Brach, Alistair Appletion, Mark Williams og Alistair Wilson og öðrum sem hafa verið í samstarfi við Mindfulnessassociation.
Námsmarkmið
Að þjálfa núvitund sem leiðir okkur til okkar sjálfra. Öðlast tilgang, gleði, sköpun og innri frið. Þróa með sér jákvæðni og hugrekki sem styður við að takast á við lífið í stað þess að forðast það. Vera meira til staðar, vera forvitin og taka við allri upplifun og því sem er allra mikilvægast að breyta hugsun okkar um óþægindi og þjáningar.
Kennsluform
Æfingar eru ýmist sitjandi, liggjandi eða á hreyfingu. Á milli æfinga eru fræðslur og umræður.
Tími
Námskeiðið er 8 vikna langt. Hver tími er 1.5 klst. Með heimavinnu frá 35 mín til 45 mín.
Kennari
Guðný Helga Kristjánsdóttir
