top of page

Guðný Helga Kristjánsdóttir

Ferðalag mitt inn í heildræna nálgun og óhefðbundnar meðferðir hófst árið 1995 þegar ég lærði nudd í Gautaborg í Svíþjóð. Þar kviknaði djúpur áhugi á líkamsvitund, orkuvinnu og innri tengingu. Þessi tvö svið – líkaminn og andinn – fóru smám saman að fléttast saman og mótuðu vegferð sem hefur fylgt mér allar götur síðan.

Þegar ég flutti heim til Íslands sá ég árið 1999 auglýsingu um nám í höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð, sem þá var nýtt meðferðarform hér á landi. Ég fann strax að þetta átti erindi við mig og sú nálgun varð stór hluti af starfi mínu næstu árin.

Árið 2008 lauk ég markþjálfunarnámi sem var nýkomið til landsins, enda hef ég alltaf verið opin fyrir nýjungum og því sem er að ryðja sér til rúms. Sama ár hóf ég tveggja ára nám í heilunarskóla Karínu Becker, kennara úr Barbara Brennan Healing School, þar sem ég dýpkaði skilning minn á orkuvinnu og innri umbreytingu.

Áhuginn á náttúrulækningum leiddi mig í þriggja ára nám í alþýðugrasalækningum og útskrifaðist ég úr Heilsumeistaraskólanum árið 2011. Ég fór einnig í tíbetskt klaustur í Skotlandi (2006), þar sem ég kynntist núvitund í fyrsta sinn. Þar kviknaði ljós sem hefur logað síðan.

Ég hélt áfram námi hjá Mindfulness Association í Skotlandi og fékk þar bæði djúpa fræðslu og persónulega þjálfun. Á árunum 2017–2019 lauk ég kennsluréttindum í núvitund og samkennd, ásamt fleiri námskeiðum tengdum hugleiðslu. Árið 2022 fór ég til Sviss og lærði Tsalung-heilun hjá tíbetskum lækni, sem tengdi saman líkama, orku og anda á nýjan og lærdómsríkan hátt.

Listmeðferð hefur lengi heillað mig og þegar Háskólinn á Akureyri hóf að kenna þessi fræði skellti ég mér í námið. Það reyndist bæði skapandi, gefandi og varð samhljómur í öllu því sem ég hef unnið með í gegnum árin.

Þetta náms- og lífsferðalag hefur verið áhugavert. Ég hef kynnst sjálfri mér í gegnum hvert skref, hverja aðferð og hverja nýjung sem ég hef leyft mér að kanna. Það hefur gert vinnuna mína gefandi á dýpri hátt og fyllt mig þakklæti fyrir að fá að vera til staðar fyrir fólk í litrófi lífsins – í gleði, sársauka, umbreytingu og vexti. Ég hef alltaf fylgt hjartanu, og það hefur leitt mig inn í starf sem ég elska og fæ að rækta af heilum hug.

20230910_074331.jpg

Höfuðbeina og spjaldhryggjarmeðferðaraðili ,Nuddari, Markþjálfi, Lithimnufræðingur, Núvitundarkennari.  

Nudd við Göteborgs Gymnastisker institut.

Höfuðbeina og spjaldhryggjarmeðferð CST I - CST II - SER I - SER II - ADV I - ADV II - Visceral I B - Energy intergration I - II Energy system and balancing- Hot springs Bio Aquatic Exploration sem er höfuðbeina og spjaldhryggjarmeðferð í vatni - CSP sem er meðferð fyrir börn - Visceral manipulation 4: The THORAX - Neural Manipulation,NM1 ( Barral Institute)

Upledger Institute. 

Er í Craniosacralfélagi Islands og Bandalag íslenskra græðara.​

Markþjálfun hjá leiðtoga 2008.  

Heilun í Heilunarskóla Karínu Becker /Barbara Brennan heilunarskólinn.

Lithimnufræði - Alþýðugrasalækningar - Heilsumeistaraskólinn  

​Mindfulness association Skotland. 

Núvitundar þjálfun ár 2011 - 2012 

góðvildar þjálfun (kærleikur) ár 2018 

innsýn ár 2021 - viska ár 2023

Kennsluréttindi í núvitund ár 2017.  Kennsluréttindi í samkennd (kærleika) ár 2019. 

Inquiry training fyrir leiðbeinendur ár 2020.  Trauma mindfulness ár 2023.

Mindfulness based healthy living - núvitund.

Living well to die well - núvitund.

​TME - Tibetian Practical Tsalung HeilunarTherapyLevel I ár 2022.​​​​​

Listmeðferðarfræði HA.

bottom of page