top of page
Purple Blossom

Núvitundar og samkenndarþjálfun

Einkatímar

Núvitundarþjálfun snýst um að að taka fullan þátt í eigin lífi og lifa því eins og það skipti í rauninni máli, á því eina andartaki sem við fáum nokkru sinni, sem er andartakið sem nú er að líða, - að við séum þess verð að lifa lífinu þannig og séu líka fær um það.  Innra með okkur öllum þá finnast djúpar lindir friðar og lífsfylling þrátt fyrir hvort sem við erum niðurbrotin eða örvilnuð.  

Kostir núvitundar og samkenndarþjálfunar:

Fjölmargar sálfræðirannsóknir hafa sýnt að þeir sem stunda hugleiðslu reglulega eru lífsglaðari og ánægðari en í meðallagi.  Þetta er ekki bara mikilvægar niðurstöður sem slíkar heldur skipta þær líka miklu máli í læknisfræðinni vegna þess að slíkar jákvæðar tilfinningar tengjast lengra og heilbrigðari lífi.

- Við reglubundna hugleiðslu dregur ævinlega úr kvíða, þunglyndi og pirringi.  Minni batnar, viðbrögð verða      sneggri og andlegt og líkamlegt úthald eykst.

- Þeir sem stunda hugleiðslu reglulega eiga í betri og ánægjulegri samböndum.

- Rannsóknir um allan heim hafa leitt í ljós að hugleiðsla lækkar helstu vísibreytur um króníska streitu,

  þar á meðal háan blóðþrýsting.

- Hugleiðsla gagnast líka við að draga úr áhrifum alvarlegra veikinda, eins og krónískra verkja og 

  getur meira að segja skilað árangri við að draga úr fíkn í lyf eða áfengi.

- Rannsóknir hafa sýnt að hugleiðsla styrkir ónæmiskerfið og hjálpar fólki að berjast við kvef, flensu og aðrar

  pestir.

Hugleiðsla kennir þér að þekkja niðurdrepandi minningar og hugsanir um leið og þær kvikna.  Hún minnir þig á að þær eru minningar.  Þær eru eins og áróður, þær eru ekki raunverulegar.  Þær eru ekki þú. Þú getur lært að virða neikvæðu hugsanirnar fyrir þér, leyfa þeim að staldra við smástund og síðan horft á þær gufa upp fyrir augunum á þér.  Og þegar þetta gerist getur það leitt af sér stórfurðulegt fyrirbæri: 

Djúpstæð sælukennd og friður fylla tómið eftir þær.  Núvitundar og samkenndarhugleiðsla gerir þetta með því að virkja aðrar leið fyrir huga okkar til að tengjast heiminum.  Flest okkar þekkja bara hina rökvísu hlið hugans; hugsun, ályktanir, áætlanir og leit í gömlum minningum að lausnum.  En hugurinn gerir sér líka grein fyrir ýmsu.  Við hugsum bara ekki um hluti, við gerum okkur líka grein fyrir að við erum að hugsa.  Og við þurfum ekki tungumál sem miðil milli okkar og heimsins; við getum líka skynjað hann beint í gegnum skilningarvitin.  Við getum skynjað beint fyrirbæri eins og fuglasöng, ilm að fallegum blómum og bros ástvinar.  Og þá vitneskju öðlumst við bæði með höfði og hjarta.  Hugleiðsla leiðir af sér skýrari hugarsýn; við sjáum hluti með hreinni, opinni vitund.  Til er staður - sjónarhóll - þar sem við getum horft á okkar eigin hugsanir og tilfinningar þegar þær verða til.  Þar þurfum við ekki kveikjuna sem heimtar að við bregðumst við atburðum um leið og þeir gerast.  Okkar innra sjálf - sá hluti okkar sem í eðli sínu er ánægður og rór - er ekki lengur kaffærður af hávaða í huganum sem er að brjóta niður vandamálin.

Núvitundarhugleiðsla hvetur okkur til að sýna sjálfum okkur meiri þolinmæði og umburðarlyndi og þróa með okkur opinn huga og hógværa þrautseigju.  

Hvernig gengur þetta fyrir sig?

Þú skuldbindir þig í annað hvort í 4 eða 8 vikur og við hittumst 1x í viku í 1 klst.  Þú færð leiðarvísir og hljóðhugleiðslur með þér heim.  Leiðarvísirinn innheldur fræðslu, hugleiðslur og heimaverkefni sem er ætlast til að þú sinnir frá 35 mín til 45 mín á dag og haldir dagbók.  Í tímanum verður farið í fræðslu og hugleiðslu sem á svo að iðka heima.

 

Verð - 4 vikur. 64.000.-  8 vikur. 116.000.-​

              Menntun mín í núvitundarfræðum

2011 - 2023 Núvitundarþjálfun

2017 - 2019 Kennsluréttindi

2019 - 2024 

Núvitundarþjálfun

Góðvildarþjálfun

innsýn

viska

Núvitund

Góðvild (samkennd)

Inquiry fyrir kennara

Trauma núvitund

Tonglen reatreat

Mindfulness Based healthy living

Living well to die well

MA_Member_logo-25_26.jpg
bottom of page