
Uppledger höfuðbeina og spjaldhryggarmeðferð
Þetta er milt og öruggt meðferðarform sem byggir á ákveðnum handbrögðum og tækni. Greint er ójafnvægi í höfuðbeina og spjaldhryggjar kerfinu og það er leiðrétt. Unnið er með og losað um spennu, samgróninga og bólgur í öllu bandvefs - og himnukerfi líkamans. Meðferðin eykur orku og vökvaflæði líkamans og fer einnig inn á að losa um bældar tilfinningar sem tengjast spennu í vefjum hans ( vefræn tilfinningalosun).
Saga og þróun
Höfuðbeina og spjaldhryggjarmeðferð hefur þróast alla síðustu öld út frá vinnu og uppgötvun þriggja lækna; A.T. Still, William Sutherland og dr. John E. Upledger. A.T. Still (1873) var læknir (osteopati). Hann hneigðist að náttúrulækningum. Hann lagði mikla áherslu á að líkaminn er ein eining/heild, og að uppbygging hans og starfsemi eru nátengdar. Hann leit á líkamann sem kerfi með sjálflæknandi eiginleika, því minna sem við grípum inn í starfsemina þeim mun betur gengur að læknast. Osteopatinn William Sutherland var nemandi A.T.Still. Hann er talinn vera upphafsmaður Cranial osteopathy(höfuðbeina liðfræði). Hann hafði mikinn áhuga á uppbyggingu höfuðkúpunnar. Hann lærði að uppbygging og starfsemi líkamans eru nátengd og skoðaði uppbyggingu samskeyta (sauma) höfuðbeinanna. Hver saumur hefur sér eiginleika í uppbyggingunni og Sutherland sýndi fram á þýðingu þess fyrir starfsemi höfuðkúpunnar/ hreyfingu. Hann uppgötvaði að höfuðbeinin eru ekki aðeins hreyfanleg, heldur að þau hreyfast taktfast í útþenslu og samdrætti, hjá eðlilegum einstaklingi. Hann kom fram með kenningar um að hægt væri að hreyfa höfuðbeinin og hafa þannig áhrif á starfsemi heilans og heilatauganna. Sutherland taldi að með því að leiðrétta afstöðu beinanna þá lagaðist starfsemi líkamans.
Dr. John E. Uppledger fékk áhuga á Cranial Osteopathy eftir að hafa rekist á kröftugan slátt í mænuvökvanum þegar hann aðstoðaði við skurðaðgerð þar sem fjarlægð var kölkun í hálsi. Hann nam fræði Sutherland og eftir mikla rannsóknarvinnu við Michican State University. Craniosacral meðferðina sem ólíkt cranial osteopathy gengur út frá því að beinin þjóni og fylgi bandvefnum en ekki öfugt. Niðurstaða Dr. uppledger var sú árangursríkasta meðferðarvinna til að taka til allra þátta mannsins, jafnt líkamlegra sem andlegra þátta. Maðurinn er ein heild og það ber að meðhöndla hann sem slíkan.
Höfuðbeina og spjaldhryggjarmeðferð
Höfuðbeina og spjaldhryggjarkerfið er lífeðlisfræðilegt kerfi, sem er tiltölulega nýlega uppgötvað. Það samanstendur af heila og mænuhimnum og heila og mænuvökva sem umlykur, nærir og ver miðtaugakerfið. Það nær frá höfuðbeinum og niður á spjaldhrygg. Höfuðbeina og spjaldhryggjarkerfið er hálflokað vökvakerfi. Vegna frásogs og framleiðslu á heila og mænuvökva þá myndast taktföst hreyfing á vökvanum. Þessi taktfasta hreyfing veldur hreyfingu á heila og mænuhimnum. Sú hreyfing kvíslast eftir himnukerfi líkamans sem er ein samhangandi heild. Þá hreyfingu er hægt að greina með snertingu hvar sem á líkamanum. Þessi taktfasti sláttur í heila og mænuvökvanum er u.þ.b. 6 -12 slög á mínútu. Höfuðkúpan er samsett úr mörgum beinum sem eru aðskilin við fæðingu. Þau vaxa og ná saman og mynda beinsaum sín á milli. Hin hefðbundna skýring er sú að við sjö ára aldur eru beinin orðin samsoðin heild. En í þessari meðferð er gengið út frá því að beinsaumurinn sé í raun bandvefsliðamót er bjóði upp á hreyfingu beinanna. Þetta er ekki mikil hreyfing en höfuðkúpan þenst út og dregst saman við hreyfingu heila og mænuvökvans. Ef hins vegar einhverjar hindranir verða á hreyfingu höfuðbeinanna eða einhverstaðar í himnukerfi líkamans hindrar það flæði þessara taktföstu hreyfingar eftir himnukerfinu. Hægt er að meta hvar hindranir liggja með því að greina taktinn á nokkrum stöðum á líkamanum.
Bandvefur
Bandvefskerfi líkamans er það kerfi sem tengir saman alla hluta hans í eina heild. Það má líta á bandvefinn sem eitt samhangandi slíður sem nær frá hvirfli til ilja. Bandvefurinn myndar himnur í heila, slíður um heila, mænu og taugar og hvíslast um æðar, vöðva, bein, líffæri og önnur byggingarefni líkamans, þar með talið frumur og frumulíffæri. Bandvefur er uppbyggður af bæði trefjaefni Kollageni og teygjuefni elastíni. Það gerir honum kleift að vera bæði teygjanlegur og að dragast saman aftur. Þessir eiginleikar bandvefs valda því að hann aðlagast himnum ýmsu breytingum sem eiga sér stað í líkamanum, bæði eðlilegum vexti og óeðlilegum, t.d. bólgum, æxli og skekkjum. En slíkar breytingar og skekkjur eru samt sem áður álag á bandvefinn sem er í stöðugri viðleitni til að fara í rétt horf. Teyguþáttur bandvefsins geymir í sér minni um eðlilega stöðu. Höfuðbeina og spjaldhryggjar meðferð styður við líkamann í að vinda ofan af bandvefnum, og þar sem teygjuþáttur himnukerfisins man réttu leiðina, er mikilvægt að meðferðaraðili láti af þörf sinni til að gera eða stjórna og hlusti á líkama þiggjanda meðferðinnar því hann veit best hvað þarf að gera.
Vefræn tilfinningalosun
(SomatoEmotional Release).
Vefræn tilfinningalosun (VTL) er sállíkamleg aðferð sem notuð er til að aðstoða líkamann við að losa um vefrænar afleiðingar af áföllum og neikvæðar tilfinningar sem þeim tengjast. Hún byggir á höfuðbeina og spjaldhryggjar vinnunni en einnig er beitt samtalstækni. Þetta meðferðarform hófst í lok áttunda áratugarins þegar Dr. John Upledger og lífeðlisfræðingurinn Dr. Zvi Karni Phd. rákust á að oft gerist það að líkaminn geymir í sér orku sem er afleiðing af slysum, meiðslum eða tilfinnanlegs áfalls. Áfallið gerir það að verkum að líkaminn geymir orkuna á einhverjum stað í líkamanum og myndar það sem Dr. Upledger kallar orkumein (energy cyst). Heilbrigður líkami getur tekið inn og aðlagast slíkum orkumeinum, en þau valda því að meiri orka fer í alla starfsemina. Eftir því sem árin líða þá minnkar aðlögunargetan og fram koma einkenni sem sífellt er erfiðara að horfa framhjá eða halda niðri.
Meðferðin
Höfuðbeina og spjaldhryggjarmeðferð fer fram með þeim hætti að í flestum tilvikum liggur sá er þiggur meðferðina á bekk og er fullklæddur. Meðferðaraðilinn byrjar á að greina hreyfinguna í mænuvökvanum með því að þreifa eftir henni á nokkrum stöðum á líkamanum, og finnur þannig út hvar liggur spennan sem hindrar hreyfinguna. Meðferðin er síðan fólgin í að losa um spennu í bandvefnum og liðka til fyrir hreyfingu höfuðbeina og spjaldhryggs og þar með losa um spennu í þessu himnukerfi miðtaugakerfisins og leiðrétta skekkjur á beinum. Gegnumgangandi er markmiðið að nota mjög léttan þrýsting, innan við 5 grömm, Líkami þiggjandans er alltaf sá sem ræður ferðinni , bæði hvað magn þrýstings og stefnu varðar. Ef beitt er auknum þrýstingi þá bregst líkami þiggjandans við með því að veita mótspyrnu gegn innrásinni. Með léttri snertingu erum við að læðast framhjá varnarkerfi líkamans og hann nær að nýta sér þennan létta þrýsting og orku til að losa um spennu eða stíflur. Þessi milda nálgun og að líkami þiggjandans ræður alltaf ferðinni, tryggir að þetta er mjög öruggt og hættulaust meðferðarform. Algengt er að þessi meðferð taki um klukkustund í senn en það er mjög misjafnt eftir einstaklingum hve oft þarf að koma. Langflestir finna fyrir verulegri bættri líðan í fyrstu 1-3 skiptunum. Mjög margir hafa gert þessa meðferð að reglubundnum þætti í sinni heilsueflingu.
Meðferðargildi
Höfuðbeina og spjaldhryggjarmeðferð er mjög mild meðferð sem þrátt fyrir lítið inngrip hefur mjög djúp áhrif. Styrkur þessa meðferðarforms er m.a að hluti meðferðarinnar felst í að vinna frá kjarnanum (mænu) og út á við. Þessi meðferð vinnur með líkamanum að auka eigin getu til að efla starfsemi miðtaugarkerfisins dregur úr neikvæðrar afleiðingar streitu, eflir almennt heilsufar og eykur viðnám gegn sjúkdómum.
Höfuðbeina og spjaldhryggjarmeðferð hefur m.a reynst vel við eftirfarandi einkennum:
- Mígreni
- Íþróttameiðslum
- Krónískum háls og bakverkjum
- Heila og mænusköðum
- Örðugleikum í stjórnun hreyfinga
- Streita og streitutengdum vandamálum
- Kjálka og bitvandamálum
- Hryggskekkju
- Síþreytu
- Taugavandamálum
- Námsörðugleikum
- Ofvirkni
- Vefjagigt
- Áfallsröskun
-Vandamálum í ónæmiskerfinu
- Vefjavandamálum eftir skurðaðgerðir
- Vanlíðan ungabarna
Upledger höfuðbeina og spjaldhryggjarmeðferð hefur fengið mikinn meðbyr, góðar móttökur hjá almenningi og viðurkenningu. Byggist á þeim góða árangri sem næst með þessu meðferðarformi.
